HR Hlaðvarpið
HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).
HR Hlaðvarpið
Verkfræðivarpið// 44. þáttur - David Finger
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í þessum þætti Verkfræðivarpsins ræða Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur við David Christian Finger, dósent við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.
David er vísindamaður, kennari og ráðgjafi með doktorspróf í náttúruvísindum frá ETH Zürich í Sviss og hefur gegnt fjölmörgum alþjóðlegum trúnaðarstörfum, meðal annars sem varaforseti International Ecological Engineering Society.
Rannsóknir hans hafa einkum beinst að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, vatnsauðlindum og vistkerfum fjallasvæða.
Í þættinum ræðum við sjálfbærni, hvers vegna hún skiptir máli fyrir samfélagið og atvinnulífið, og hvernig þessar áskoranir hafa áhrif á menntun og þjálfun verkfræðinga framtíðarinnar.
UM VERKFRÆÐIVARPIÐ
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.