Gagnarök
Konfektmolar í veröld markaðsmála í boði Digido. Hér er fjallað milli allt milli himins og jarðar er snýr að markaðsmálum. Komdu með okkur í ferðalag um fjölbreytta undraveröld sem breytist hratt.
Gagnarök
ÍMARK dagurinn & Lúðurinn 2023
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Fyrsti þátturinn af Gagnarök lítur hér með dagsins ljós og heyrir bylgjunnar hljóð. Umfjöllunarefnið að þessu sinni er Lúðurinn & ÍMARK dagurinn - uppskeruhátíð markaðsfólks á Íslandi sem haldin var þann 24. mars 2023.
Þeir Ómar Þór og Andri Már draga andann djúpt og kafa ofan í þetta helsta:
- Áhugaverðustu molana úr fyrirlestrum dagsins
- Þekktasta vörumerkið á Íslandi
- Árangursríkustu herferð ársins
- Rjúkandi heitar niðurstöður úr markaðskönnun Maskínu
- Valið á markaðsfyrirtæki og auglýsingafyrirtæki ársins
- Hvaða auglýsingar báru sigur úr býtum á Lúðrinu
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing