Gagnarök
Konfektmolar í veröld markaðsmála í boði Digido. Hér er fjallað milli allt milli himins og jarðar er snýr að markaðsmálum. Komdu með okkur í ferðalag um fjölbreytta undraveröld sem breytist hratt.
Gagnarök
Góð ráð fyrir Facebook & Instagram herferðir
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar, Birkir og Ebbi góð ráð við að keyra herferðir á Facebook og Instagram (FB & IG).
Erlendar birtingar hafa tekið fram úr innlendum birtingum á Íslandi og ljóst að mikilvægi þess að keyra skilvirkar og árangursríkar herferðir á stærstu miðlum landsins hefur aldrei verið mikilvægara.
Þeir félagar ræða sín á milli hvernig er best að nálgast slíkar herferðir út frá markhópum, efnissköpun, notendaupplifun og tæknilegum atriðum til að ná sem bestum árangri.
Í þættinum köfum við ofan í:
- Hvaða markhópar eru á FB & IG?
- Hvernig stillum við upp herferðum?
- Hvað er mikilvægast að hafa í huga?
- Hver eru helstu tips og tricks?
- Hvernig mælum við árangur?
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing