Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
99. Ekki vera hrædd við að gera mistök. (Móðurmissir, dugnaður, þrjóska, mörk og hættuleg ímynd ofurkonunnar). Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við hina dásamlegu Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur um lífið og tilveruna, að alast upp hjá einstæðum föður, eldmóð í starfi, mikilvægi þess að setja mörk, hvernig það er að eiga tvíbura, hættulega ímynd ofurkonunnar, metnað, dugnað og þrjósku.
Ragnhildur Steinunn er líklega flestum landsmönnum kunnug enda hefur hún verið ein öflugasta sjónvarps- og dagskrárgerðarkona landsins í yfir 20 ár. Nýjasta verkefni hennar er heimildarmyndin Takk Vigdís sem hún hefur unnið hörðum höndum að síðustu mánuði.
Vertu með í Facebook hóp hlaðvarpsins ef þú vilt fylgjast með á bakvið tjöldin.
Þátturinn er unninn í samstarfi við:
💙 Heilsuhillan og Nutrilenk - Lykillinn að góðri liðheilsu
🌱 Spíran - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 Virkja- Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal
💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar
💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!