Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Episodes
156 episodes
Hver er HeilsuErla 2.0? (Heilsumoli 42)
Hver er HeilsuErla? Er hún enn sama manneskjan og tók upp kynningarþáttinn í júlí 2023? Í þessum Heilsumola veltir Erla því fyrir sér hvernig hún varð ,,jáhrifavaldur" í eigin lífi og hvernig hún hefur vaxið og þroskast með aukinni þekkingu, re...
114. Fjárhagslegt frelsi. (Sjálfstraust, fjármálahegðun og hagnýt ráð). Íris Líf Stefánsdóttir
Viðmælandi þáttarins er Íris Líf Stefánsdóttir bókari og gleðisprengja. Þær Erla ræða um sparnað, fjárhagslegt frelsi, mikilvægi sjálfstrausts, fjármálahegðun Íslendinga, fjárhagslega heilsu og svo veitir Íris Líf hlustendum frábær fjármálaráð ...
113. Healthy at 98 years. (Diet, attitude, purpose, excercise and never stop moving). Zona Merryman
In this interview Erla speaks with Zona Merryman a remarkable 98 year old lady and inspiration to everyone. She tells us how she has maintained good health over the years.Zona says that we are responsible for our own health and that our...
112. Að draga úr ótímabærri öldrun. (Mataræði, hormónar, bætiefni, sykurfíkn, styrktarþjálfun ofl). Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, horm...
111. Öndun er mitt hjartans mál. (Streita, öndunaræfingar, ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu og meðvirkni). Lilja Steingrímsdóttir
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum hlutum upp í jákvæða.Lilja sem ...
110. Allt mótlæti kemur frá okkur sjálfum. (Ævintýri, ögrun og sjálfsþroski.) Inga Þóra Ingadóttir
Í þættinum ræðir Erla við Ingu Þóru Ingadóttur, dásamlega stelpukonu um ævintýri lífsins, áskoranir, að ögra sjálfum sér, sjálfsvinnu, tækifæri og hvernig það er að flytja í ný lönd og kynnast ólíkri menningu. Inga er algjör nagli e...
109. A better you. (Declining nutrient status, food processing, soil degredation, absorption of supplements and wellness.) Andrew Thomas
In this conversation, Andrew Thomas, founder of Better You, shares his personal journey from the fashion industry to the health sector, driven by his own health challenges as an asthmatic. He discusses the importance of magnesium and its role i...
108. Lífið og tilveran. (Tilvistarkreppa, breytingarskeið, streita, foreldramissir, ADHD og draumar.) Kristborg Bóel Steindórsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, fyrrum blaðamann, dagskrárgerðarkonu, rithöfund og nú nýjast ömmu og hlaðvarps stjórnanda.Þær stöllur ræða um lífið og tilveruna og öllu sem því fylgir, um það að vera einstætt f...
107. Óútskýrðir langvinnir verkir. (Verndarkerfi líkamans, næming, öryggi, ótti og aðlögunarhæfni taugakerfisins.) Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur
Í þættinum ræðir Erla við samrýmdu systurnar Thelmu Rut og Heru Rut um óútskýrða langvinna verki. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar í fæðingarorlofi og eru saman með námskeiðið Náðu stjórn á verkjum auk þess að vera með ókeypis fræðslu á Hreyfilaus...
Hvað er blóðsykurstjórnun? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 41)
Í þessum þriðja Heilsumola frá Betu Reynis er fjallað um Blóðsykustjórnun, en með því er átt við að nota mataræðið til að stjórna blóðsykrinum.Þær stöllur ræða um skammtastærðir, sterkju, tímasetningu máltíða, kynjamun, að taka ábyrgð á ...
Magasýrur, hvers vegna skipta þær miklu máli? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 40)
Í þessum öðrum Heilsumola af þremur ræðir Erla við Betu Reynis um magasýrur, einkenni um lágar magasýrur og einkenni ef magasýrur eru háar, hvernig við eigum að bregðast við og hvað við getum gert með mataræði til þess að hafa góð áhrif. ...
Hvað er Nikkel óþol? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 39)
Í þessum fyrsta Heilsumola af þremur ræðir Erla við Elísabetu Reynisdóttir næringarfræðing og næringarþerapista um Nikkel óþol.
Frábær febrúar, 28 daga heilsuáskorun HeilsuErlu. (Heilsumoli 38)
Hefur þig lengi langað til þess að gera einhverjar breytingar á heilsuhegðun þinni en það gerist einfaldlega bara ekki eða þú kemur þér ekki í að fara af stað? Stundum þurfum við einfaldlega smá spark í rassinn til þess að komast af...
106. Að veikjast á dularfullan hátt. (Óþol fyrir tækni, hljóðfælni, verkir, P-DTR meðferð, samvægi og núllstilling taugakerfisins). Sölvi Freyr Valdimarsson
Í þættinum ræðir Erla við Sölva Frey Valdimarsson, nýútskrifaðan dúx Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veiktist á mjög dularfullan hátt þegar hann var í 10.bekk. Eftir að hafa gengið á milli lækna og annara fagmanna eins og barnalækn...
Hjartsláttarbreytileiki (HRV). Sigrún Haraldsdóttir. (Heilsumoli 36)
Í þessum stutta Heilsumola útskýrir Sigrún hvað Hjartsláttarbreytileiki (HRV) er og hvernig við getum mælt hversu sterk Vagus taugin er og bætt svokallað Vagal tone með öndun. Heilsumolinn er framhald af viðtali nr. 105.
105. Ert þú með ofþanið taugakerfi? (Vagus taugin, öndun, bandvefur, líkamsvitund og jafnvægi.) Sigrún Haraldsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sigrúnu Haraldsdóttur stofnanda Happy hips um Vagus taugina (Flökkutaugina), bandvef, ofþanið taugakerfi, hraðann í nútíma samfélagi, öndun, líkamsvitund og hvernig hægt er að núllst...
Box öndun í boði Sigrúnar Haralds (Heilsumoli 35)
Á næstu dögum fer í loftið alveg frábært viðtal við Sigrún Haraldsdóttur eiganda Happy hips um Vagus taugina. Hún talar meðal annars um mikilvægi öndunar til þess að róa taugakerfið og býður ykkur hér upp á stutta öndunaræfingu sem þið getið ný...
2026 Himnastigar- Sjáumst á nýársdag (Heilsumoli 34)
Sjáumst í Himnastiganum í Kópavogi á nýársdag. Síðustu þrjú ár (á nýársdag) hef ég haldið viðburð í Himnastiganum sem er nú orðinn ómissandi hefð ...
104. Mataræði er kóngur. (Heilsuvenjur, föstur, kríur, jarðtenging og fleira.) Sigurjón Ernir Sturluson
Í þættinum ræðir Erla við Sigurjón Erni Sturluson, íþróttafræðing, ofurhlaupara og frumkvöðul um æsku hans og hvernig hún hefur mótað hann, heilsuvenjur, jarðtengingu, kríur, föstur, næringarþéttni, ranghugmyndir í samfélaginu, tilgang lífsins ...
103. Að dúxa endurhæfingu. (Lýðheilsa, heilaheilsa, öndunaræfingar, næringarþéttni, hreyfing og svefn). Sonja Sif Jóhannsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sonju Sif Jóhannsdóttur, íþróttafræðing um lýðheilsu, heilaheilsu, endurhæfingu eftir höfuðhögg, Vagus taugina, mikilvægi öndunaræfinga, næringarþéttni, svefn, hreyfingu, spennandi rannsókn sem hún gerði á heilsu sjóma...
Svo lengi lærir sem lifir. Ólympískar lyftingar, HM ævintýrið og hugarfar. Kári Walter og HeisluErla (Heilsumoli 33)
Í undirbúningi mínum fyrir HM í ólympískum lyftingum stakk Kári þjálfari upp á því að við myndum taka smá hlaðvarpsspjall um vegferðina. Úr varð skemmtilegur og óhefðbundinn þáttur þar sem að ég er ekki spyrillinn heldur er þetta spjall um muni...
102. Hvað eru „triggerar"? (Áfallastreita, sjálfsvitund, taugakerfið og leiðavísir að ósýnilegum sárum). Anna Sigurðardóttir
Í þessum þætti ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um triggera eða kveikjur. Leitast er við að svara ýmsum áhugaverðum spurningum. Hvað eru triggerar? Hver ber ábyrgð á því að við triggerumst? Afhverju bregðumst við við á ólíkan hátt ...