
Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
Núllstilling (Heilsumoli 26)
Laufey Haraldsdóttir eigandi Virkja færir hlustendum hlaðvarpsins þessa dásamlegu gjöf. Hún leiðir okkur í gegnum 8 mínútna núllstillingu en æfinguna getur þú hlustað á hvar og hvenær sem er þegar þér hentar.
Tilvalið til þess að hægja á í amstri dagsins, minnka streitu og kyrra hugann.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!