Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
116. Við þurfum að finna veikleikana okkar til að finna hugrekkið. (Mia Magic, langveik börn, hugarfar og andleg heilsa). Þórunn Eva G. Pálsdóttir
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Viðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic. Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira.
Hvað er Mia Magic? Það er íslenskt góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra. Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja algenga sjúkdóma og inngrip á þeirra forsendum, svo sem Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í blóðprufu og Mía lærir um sykursýki. Félagið sendir einnig út Míubox til að létta undir með fjölskyldum og veitir fagfólk viðurkenningu með Míuverðlaunum.
Þórunn Eva var valinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 en fyrir framlag sitt til góðgerðarmála.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk?
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!