Álhatturinn
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.
Álhatturinn
Blackrock og Vanguard stjórna heiminum í gegnum krosseignarhald
Fjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir.
Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En hvaða sjóðir eru þetta? Hverjir eiga þá og hverra erinda gegna þeir? Samanlagt eiga þessir tveir sjóðir og litli bróðir þeirra State street uþb 22% allra hlutabréfa í veröldinni og sitja þeir saman eins og ormur á gulli á tæplega 5% heildar auðs heimsins.
Auk þess er þessir sjóðir eiga stóran hlut í uþb 89% af fyrirtækjunum sem skráð eru á SPP500 hlutabréfavísitöluna. Í öllum þessum fyrirtækjum eiga sjóðirnir stjórnarmenn sem ganga erinda þeirra og kjósa eftir þeirra höfði. Það má því með sanni segja að sjóðirnir fari með völd og ráði yfir allflestum fyrirtækjum á bandarískum hlutabréfamarkaði og jafnvel víðar. Sjóðirnir eiga til að mynda hlut í íslenskum fyrirtækjum á borð við Marel og Össur auk þess að erfitt er að finna það alþjóðlega fyrirtæki sem þeir eiga ekki hlut í.
Getur verið að þessir sjóðir hafi t.d áhrif á efnisval sjónvarpsstöðva eða streymisveita í þeirra eigu? Hvaðan kemur þessi krafa um svokallaðar sjálfbærnis og jafnréttis vottanir og eru þær smfélaginu í raun til góða eða búa annarlegar og afkáralegar hvatir að baki? Getur verið að illa innrætt fólk vilji knésetja fjölskyldueininguna og útrýma öllum þjóðlegum eða persónulegum gildum? Til þess að við missum sjónar af sjálfum okkur og því sem raun skiptir máli. Vilja stjórnvöld að við upplifum okkur útundan og ein svo auðveldara sé að selja okkur lygina og stjórna okkur? Hvað og hverjir ráða því í hvaða fyrirtækjum sé fjárfest og hvaða fyrirtækjum ekki?
Og til hvers eru eiginlega allar þessar tilgerðarlegu og tilbúnu vottanir sem þýða í raun ekkert þar sem þær ganga hvort sem er kaupum og sölum á almennum markaði? Allt tal um lífrænar vottanir, kolefnisfótspor og jafnlauna vottanir er í raun tilgangslaust hjal og merkingarlaust þvaður þegar vottanirnar eru keyptar og seldar á markaði og seldar hæstbjóðanda. Snúast þessar vottanir þá fyrst og fremst um peninga en ekki umhverfisvernd?
Þurfa fyrirtæki þá að þóknast þessum sjóðum og ákveðnum stjórnmálamönnum til þess að eiga séns á að lifa af, fremur en að fara eftir þar til gerðum umhverfis reglum? Snýst þetta bara allt um ofsagróða hinna fáu og ríku fremur en hagsmuni náttúrunnar og almennings? Og hvernig stendur eiginlega á því að sömu þrír sjóðirnir fái að eiga svo stóra hluti í svo gott sem öllum fyrirtækjum á markaði.
Hverra erinda ganga þeir og hversvegna? Snýst þetta einungis um að tryggja sjálfbærni og velferð mannkyns eða eru annarlegar og vofeiginlegar ástæður að baki. Þetta og svo margt, margt fleira skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem félagarni Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að BlackRock og Vanguard stjórni heiminum í gegnum krosseignarhald.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
- https://www.youtube.com/watch?v=iCa4L22Fle4
- https://www.youtube.com/watch?v=k1gG0twZIEs
- https://www.youtube.com/watch?v=Mvh4o6x3-GQ
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.