Álhatturinn
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.
Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥
➡️ Áskriftarhlekkurinn:
https://pardus.is/alhatturinn
Episodes
72 episodes
Artemis II tunglverkefnið var sviðsett
Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og...
P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 1
Charlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks. Strákur úr úthverfi Chicago sem hætti háskólanámi til að stofna Turning Point USA, samtök sem börðust ge...
Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi
Krabbamein hefur fylgt manninum frá örófi alda, og í raun ekki bara manninum heldur öllum lífverum á jörðinni. Strangt til tekið ekki eitt stakt mein heldur heill hópur sjúkdóma sem falla undir regnhlífarhugtakið krabbamein. En hver...
Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til
Á hálendi Skotlands liggur djúpt og dimmt stöðuvatn sem lengi hefur vakið athygli umheimsins: Loch Ness. Þar á, samkvæmt sögunni, að búa dulræn vera sem oftast er kölluð Nessie. Líklega eitt frægasta dýr eða vatnaskrímsli veraldar, sem þó e...
Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu
Við lærum um Forn-Grikkland, Mesópótamíu, Egyptaland og allskonar forn stórveldi í skóla. En var heilt heimsveldi vísvitandi strokað út úr sögunni? Við erum að tala um Tartaríu. Risavaxið veldi sem náði allt frá Rússlandi og langt i...
Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni
Eitt fjölmargra menningarlegra stórvirkja hins kyngimagnaða og vanmetna leikstjóra, Michael Bay, er kvikmyndin Pearl Harbor. Kvikmynd sem lýsir því á dramatískan og stórfenglan hátt hvernig Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyrj...
NBA deildin í körfubolta er töluvert rigguð
NBA deildin í körfubolta er líklega stærsta körfuboltadeild í heimi. Eða í það minnsta sú lang stærsta og tekjuhæsta og sértu af aldamótakynslóðinni þá manstu vafalaust eftir NBA æðinu, sem greip um sig meðal ungra íslendinga, seint...
Virginia Giuffre (fórnarlamb Jeffrey Epstein) var sjálfsmyrt
Jeffrey Epstein var viðrini og viðbjóður sem misnotaði börn og fólk og auðveldaði öðrum ógeðum að gera slíkt hið sama. Það vitum við öll. Rétt eins og morgunljóst að hann féll ekki fyrir eigin hendi. Það sjá allir menn. Hann flaug auðjöfrum og ...
Fæðuráðleggingar yfirvalda snúast ekki um heilsu þína heldur gróða stórfyrirtækja
Þú ert það sem þú borðar, eða svo segir máltakið og mýtan, sem okkur hefur verið matreidd ofan í okkur af yfirvöldum og fjölmiðlum. Við berum öll sjálf ábyrgð á eigin heilsu og ef við hlustum á yfirvöld og fylgjum ráðleggingum landlæknis og bor...
Blackrock og Vanguard stjórna heiminum í gegnum krosseignarhald
Fjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir. Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En hvaða sjóðir eru þett...
Dauði Elvis Presley var sviðsettur
Elvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og verða að ótrúlegri stórstjörnu sem n...
Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin eru leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur 🚀
Risastór hátæknileg og afar hljóðlát flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk?Eru geimverurnar loksins mættar til þ...
Úrslitum í handbolta er reglulega hagrætt með vitneskju og samþykki Alþjóða Sambandsins
Í Janúar á hverju ári fyllist íslenska þjóðin af miklum eldmóð og fær skyndilega brennandi áhuga á handknattleik. Fólk flykkist erlendis til þess að styðja við bakið á “strákunum okkar” og við sannfærumst öll um að nú sé stundin loks runninn up...
Sirhan Sirhan, sem skaut Robert Kennedy, var dáleiddur af CIA til að fremja morðið, Zoolander style
-> Special Guest appearance: Fulltrúar allra stjórnmálaflokka fyrir alþingskosningar 2024 (fyrir utan Vinstri Græn) gefa sína skoðun á JFK og RFK morðunum.Robert Kennedy, einnig þekktur sem Bobby Kennedy var einhver mesta vonarstjarn...
Valdastéttin mótar menntakerfið til að framleiða undirgefna borgara
Stundum er sagt að mennt sé máttur og góð menntun sé lykillinn að árangursríku og góðu lífi. Nám erv vinna og vinnan göfgar manninn, ekki satt? En hvaðan kemur menntakerfi okkar og á hvaða grunni eða hugmyndafræði er það byggt? Er markmið...
Hollywood og Netflix eru heilaþvottavélar hulduaflanna
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa ótrúlega mikil tök á samfélaginu öllu og...
Dauði Adolf Hitler var sviðsettur, hann lifði af og flúði til Argentínu
Adolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til framdráttar. Milljónir saklausra borga...
Mandela áhrifin eru raunveruleg, og eru ekki afleiðing sameiginlegra falsminninga
Manstu þú eftir því þegar Nelson Mandela dó í fangelsi? Eða eftir myndinni Shazaam með Sinbad? Ef svo er þá ert þú ertu mögulega víddaflakkari eða einfaldlega eitthvað að misminna. Þó að mörg hver okkar munum kannski ekki eftir dau...
Dularfullt andlát Kurt Cobain var ekki sjálfsvíg, heldur skipulagt morð
Ef þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og meðlimir sveitarinnar voru dýrkaðir og dá...
Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi
Hvaða rákir eru þetta sem standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn? Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega a...
Paul McCartney lést í bílslysi árið 1966 og var skipt út fyrir loddara
Flest könnumst við eflaust við Bítlana, eina vinsælustu og sigursælustu hljómsveit allra tíma, sem fór sigurför um heiminn um miðbik síðustu aldar. Þeir félagarnir George, John, Paul og Ringo, stofnuðu hljómsveitina í Liverpool á E...
Nýlenduherrar létu granda flugvél Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna
Dag Hammerskjöld, framkvæmdarstjóri sameinuðu þjóðanna, lést er flugvél hans og fylgdarmanna hans, fórst á leið til friðarviðræðna í Kongó 18.September 1961. Upphaflega var talið að mistök flugmansins eða veðuraðstæður leitt til þess að flugvél...
Jörðin er flöt
Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjón...
Valdarán á Seðlabanka Bandaríkjanna leiddi af sér algjöra stjórn á landinu
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að s...