Álhatturinn

Virginia Giuffre (fórnarlamb Jeffrey Epstein) var sjálfsmyrt

Jeffrey Epstein var viðrini og viðbjóður sem misnotaði börn og fólk og auðveldaði öðrum ógeðum að gera slíkt hið sama. Það vitum við öll. Rétt eins og morgunljóst að hann féll ekki fyrir eigin hendi. Það sjá allir menn. Hann flaug auðjöfrum og valdamiklum mönnum ítrekað til eyju sinnar little St James þar sem haldin voru tryllt teiti þar sem ógeðsleg svöll þessum viðrinum til yndisauka og ánægju á meðan fórnarlömbin þjáðust og allt var fest á filmu. 

Eitt þessara fórnarlamba, Virginia Giuffre, steig fram og ræddi opinskátt og óheflað um lífssreyslu sína sem nuddari hjá Epstein. En er kannski þekktust fyrir frásögn sína af samskiptum þeirra  Prince Andrew. Virginia var ákveðinn drifkraftur og kyndilberi í baráttu fórnarlambanna og fékk mikið lof fyrir baráttu sína. Hún var harðákveðin í að láta ekki deigan síga og opinbera og afhjúpa allan viðbjóðinn og alla svæsnu sóðapésana sem heimsóttu eyjuna og teitin hans Epstein.

Margoft steig hún fram og sagðit svo enginn vafi leikur á að hún væri full af eldmóði og í miklum baráttuhug og að hún myndi aldrei undir nokkrum kringumstæðum taka eigið líf. Aldrei. 

Það vakti því óneitanlega mikla furðu og athygli álhatta um allan heim þegar hún fannst látin fyrir nokkru og banamein hennar var sagt vera sjálfsvíg. Mannekjan sem hafði tekið það fram að hún væri alls ekki í neinum sjálfsvígshugleiðingum og að enginn ætti nokkurtíman að taka frásögnum af sjálfsvígi hennar trúanlegar. 

Virginia hafði vissulega lifað stormasömu og þyrnistráðu lífi sem, einkenndist af hverju áfallinu af fætur öðru. En einhvern veginn hafði hún ætíð staðið sterkari upp aftur, sama hversu oft lífið brá fyrir hana fæti. Eins Og misnotkun í æsku og hörmungin hjá Epstein væri ekki nóg þá hafði hún einnig lent í heimilisofbeldi og nú nýlega hafði skólabíll keyrt inn í hliðina á bíl hennar svo læknar töldu að hún ætti einungis örfáa daga eftir ólifaða. 

Svo fannst hún látin og andlátinu var lýst sem sjálfsvígi. Hentugt fyrir Epsteina og Andrewa þessa heims. Óheppilegt fyrir réttlætið. En hvað gerðist í raun og veru? Getur verið að þessi mikli eldhugi og baráttu kona hafi bara misst móðinn og gefist upp? Eftir alla þá þrotlausu vinnu sm hún hafði lagt í að opinbera viðbjóðinn. 

Þetta og svo margt, margt fleira dularfullt og áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum. Þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri skuggalegu samsæriskenningu að Virginia Giuffre hafi verið sjálfsmyrt. 

HLEKKIR Á ÍTAREFNI

UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.