Álhatturinn
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.
Kostar aðeins 990 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥
➡️ Áskriftarhlekkurinn mikli: https://www.buzzsprout.com/2211949/subscribe
Álhatturinn
Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum
Charlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks.
Strákur úr úthverfi Chicago sem hætti háskólanámi til að stofna Turning Point USA, samtök sem börðust gegn því sem hann kallaði woke-heilaþvott og vinstri slagsíðu í bandarískum háskólum. Fyrir sumum var hann hetja sem sagði það sem aðrir þorðu ekki að segja.
Fyrir öðrum var hann ógn og rödd sem kynti undir tortryggni og fordóma. En höfðu jafn mikla ástríðu fyrir rökræðum og stjórnmálaumræðu og Charliei. Hann átti eldheita og dygga stuðningsmenn en líka blóðheita andstæðinga sem gjörsamlega hötuðu hann, einungis vegna skoðana hans. Fólk sem að var við það að froðufella af reiði í hvert sinn sem Charlie leyfði sér að tjá sig um sín hjartans mál.
Svo á björtum september degi í Orem í Utah var hann skotinn til bana af leyniskyttu, á viðburði sem Turning Point stóð fyrir þar sem byssueign almennings var eitt af umræðuefnunum.
Viðburðurinn er tekinn upp frá öllum sjónarhornum, sendur út í beinni og dreifist um netið á ógnarhraða. Líkt og eldur í sinu. Og líkt og hendi sé veifað vöknuð strax grunsemdir á netinu. Var þetta bara einmanna veikur einstaklingur með byssu eða hluti af einhverju stærra plotti?
Var markmiðið að vekja reiði, búa til píslarvott og hleypa af stað hringekju hefnda? Hella olíu á eld pólitískra deilna og magna enn frekar upp klofning í nú þegar tvístruðu samfélagi? Eða var þetta kannski bara afleiðing stundarbrjálæðis í virkilega veikum manni?
Hverjir hefðu hag af því að kveikja slíkan eld? Vinstrið sem hefur sterk ítök í háskólum og vill lama hægri vænginn? Öfgahægrið sem vill nýta sér Kirk sem píslarvott til að réttlæta hefndaraðgerðir?
Djúpíkið sem vill herða öryggislög og auka eftirlit með okkur öllum? Eða erlend ríki sem fagna sundrungu og upplausn í Bandaríkjunum ? Eða mesti óvinur allra sannra Álhatta, hið alræmda siðblinda Skuggavald sem svífst einskis og raunverulega stjórnar öllu með harðri hendi bakvið tjöldi.
Hvað sem átti sér stað í Utah þennan dag er eitt alveg morgunljóst. Morðið á Charlie Kirk hefur hækkað hitastigið í bandarískri pólitík og blásið vel upp í eldi menningarstríðsins. Er þetta upphafið af stærra átakaskeiði og mögulegri borgarastyrjöld eða hræðilegur einstakur atburður sem sumt fólk er að lesa of mikið í?
Allt þetta og margt fleira í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort morðið á Charlie Kirk hafi verið plott til að kveikja borgarastyrjöld í Bandaríkjunum
HLEKKIR Á ÍTAREFNI:
- https://www.youtube.com/watch?v=sX773_Wvky0
- https://www.youtube.com/shorts/Gzp_x8Y6KjQ
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.