Álhatturinn
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.
Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥
➡️ Áskriftarhlekkurinn:
https://pardus.is/alhatturinn
Álhatturinn
Artemis II tunglverkefnið var sviðsett
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-áætlunina. Erum við að horfa á spánýtt og ótrúlegt vísindaafrek eða dýrustu og tæknilega fullkomnustu sviðsetningu og blekkingarleik sögunnar?
Opinbera sagan segir að Artemis 2 sé mönnuð geimferð, en hvers vegna var henni skotið á loft á sjálfan 1. apríl? Er skuggavaldið hreinlega að hlæja framan í okkur á sjálfan alþjóðlega hrekkjadeginum? Strákarnir rýna í myndatökur úr hylkinu sem sýna undarleg sjónarhorn þar sem enginn hefði átti að vera; hver hélt á myndavélinni og „panna“ yfir á jörðina með svona mikilli nákvæmni ef allir geimfararnir voru í mynd? Voru hinir meintu geimfarar bara leikarar frá „Central Casting“ eða raunverulegir geimfarar? Strákarnir rýna í feril Christina Koch og velta því fyrir sér hvernig hún hefur tíma til að vera bæði geimfari og leikkona með IMDb-prófíl.
Hvers vegna er háskerpumyndin svona „fullkomin“ á köflum en líkist svo camcorder-upptöku frá 1998 þegar lendingin í hafinu á sér stað? Hvar er gufan og sjóðandi vatnið þegar hylkið, sem á að hafa náð 5.000 gráðu hita, lendir í sjónum? Og hvernig geta starfsmenn strandgæslunnar snert hylkið með berum höndum án þess að brenna sig? Er NASA hreinlega hætt að reyna að fela grænskjáinn og CGI-brellurnar?
Svo eru það hin einkennilegu mismæli og framkoma geimfaranna á blaðamannafundum. Hvers vegna verða þeir flóttalegir þegar spurt er út í stjörnurnar eða Van Allen geislunarbeltið? Hvað á konan við með setningunni “þið eruð áhöfnin”(e:you are the crew)?
Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í Artemis-áætlunina. Þeir ræða meintar myndatökur Stanley Kubrick, týndu segulböndin og spyrja hversu lengi er hægt að halda úti þessu sjónarspili þegar eldflaugarnar sjást bókstaflega „beygja“ út af leið og hverfa út í hafið í stað þess að fara upp í himinhvolfið.
Þetta CGI-geimfarar og svo margt, margt fleira í Álhattinum.
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.