Tröppur - hlaðvarp
Talmeinafræðingarnir Tinna og Halldís fjalla um allt sem viðkemur málþroska, börnum, tengslum og öðru forvitnilegu.
Episodes
6 episodes
Raddmein: Hvað gerist þegar röddin hverfur?
Röddin er eitt sterkasta persónueinkenni okkar. En hvaða áhrif hefur það á manneskju að missa röddina? Við ræðum við Eygló sem glímir við raddleysi og fáum að heyra hvaða aðferðir gagnast best við að endurheimta röddina.
Snuð, tunguhöft og veikleikar á munnsvæði
Hvað er æskilegt að vera lengi með snuð? Hvaða áhrif hefur stíft tunguband? Hvað þýðir að vera með veikleika á munnsvæði? Sonja og Halldís kafa vel í þessi mál.
Hvað er svona slæmt við skjátíma?
Skjátími! Heit kartafla. Hver eru áhrif skjátíma á málþroska? Er ég vont foreldri ef ég leyfi barninu mínu að horfa á skjá? Hvað fer barnið mitt á mis við þegar ég leyfi því að horfa? Halldís og Tinna kafa djúpt í málin í þætti dagsins.
Hvað á ég að segja við barnið mitt?
Hvað á ég að segja við barnið mitt? Er ég að spyrja of mikið? Hvenær á ég að byrja að lesa fyrir barnið mitt? Halldís og Tinna fara yfir málin í þætti dagsins og gefa góð ráð.
Dagur talþjálfunar - Hrafnhildur Halldórsdóttir
Dagur talþjálfunar er 6. mars. Hrafnhildur Halldórsdóttir, talmeinafræðingur á Geðheilsumiðstöð barna er gestur þáttarins og ræddi um málþroskaröskun DLD. Hver eru einkennin? Hvernig er hægt að styðja við þessi börn og þurfa öll börn með DLD að...