SvaraBara
Sprell, spjall og spurningar með Herði og Pétri
Episodes
31 episodes
#31 Sumarið er ekki búið
Mættir aftur eftir stutt og óvænt sumarfrí. Menningarnótt framundan og sumarið er alls ekkert búið
#29 Faxafen, Fákafen, Íbúfen
Fasteignir eru stressandi, júlí er að klárast og enginn veit neitt.
#28 Hvað kemst í gegnum tollinn?
Hvað hefur fólk reynt að taka með í gegnum tollinn og alls konar steypa.
#27 Sólarpönnukökur og Opin hús
Súld í Reykjavík, sól á austurlandi, sólarpönnukökur á Ísafirði og Opin hús.
#26 Uppfinningar
Uppfinningar út frá öllum vinklum. Hvaða stórfenglegu uppfinningar hafa breytt lífi fólks á undanförnum árum? Svo skoðuðum við einnig lélegar hugmyndir sem hafa náð flugi og fólk hefur jafnvel stórgrætt á með góðri markaðssetningu.
#25 Það eru kostir og gallar við allt
Ófeigur tekur upp tólið og slær á þráðinn til gamallar vinkonu. Svo fórum við vel yfir kosti og galla mismunandi aldursskeiða. Góður þáttur í júlídembunni.
#24 Afmæli og aðstæður
Fórum aðeins yfir afmæli og félagslegar aðstæður sem enginn er góður í.
#23 Brúðkaupsumræður og stuðningsmannalög
Glatt á hjalla og óvæntar brúðkaupsumræður sem tóku yfir þáttinn.
#22 Hvað er í snyrtibuddunni þinni?
Glatt yfirbragð á strákunum. Ótrúlegir facebookhópar & sumarstemning.
#21 Hvar er verst að biðja?
Gleðilegan júlí - Hvar er verst að biðja... smá um hvalina og brauðtertufélag Erlu & Erlu.
#18 Dónatal, Fálkaorða og 17.júní
Fórum aðeins yfir dónaorð, 17. júní og Fálkaorður. Það er sumar.
#17 Spukkusur og sól
Sól & hiti í studioinu. Allir í spukkusum í tilefni dagsins, gleðilegt H&M og grillveður.
#16 Þriggja barna, þriggja fasa
Einn síðbúinn. Pétur er nýbakaður þriggja barna faðir, Hörður í framkvæmdum og dónalegu ömmurnar laumuðust óvænt með.
#15 Panodil Hot er fáránlega gott
Nú styttist í helgina og aldeilis vaðið úr einu í annað. Léttir.
#14 Afi Ófeigur og stóri facebook þátturinn!
Gleðilegan júní! Afi Ófeigur snýr aftur og nú er partý framundan. Svo fórum við helvíti vel ofan kjölinn á Facebook. Þessi er áhugaverður.
#13 Ítalía & alls konar
Hér var aldeilis vaðið úr einu í annað, engar leikreglur og nóg af vangaveltum. Pétur elskar Ítalíu en hefur heimsótt landið einu sinni...
#11 Heimilisverk, allt á suðu og horft til baka
Fórum yfir heimilisstörf, hvernig gengur með blettaþvottinn... og rifjuðum upp hluti úr æsku sem maður gerir minna af í dag.
#10 Hvaða hlutir verða ekki til eftir 50 ár?
Vorum út um allt í dag en pældum aðeins í hlutum sem munu ekki vera til eftir 50 ár.
#9 Let down, Vonbrigði og Guilty Pleasure
Fórum aðeins yfir Guilty Pleasure & aðstæður sem valda vonbrigðum.