
Góðar sögur
Góðar, fyndnar, jafnvel sorglegar en umfram allt einlægar sögur af góðu fólki á Reykjanesi. Umsjón er í höndum Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Suðurnesja og unnið af starfsmönnum Heklunnar, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness. Alla þætti má nálgast á reykjanes.is og facebook.com/godarsogur
Episodes
32 episodes
Elvar Már Friðriksson
Hann var lágvaxinn og seinn til í þroska sem lá þungt á honum á unglingsárum. Það fyllti hann eldmóð til þess að leggja ennþá harðar að sér og sanna sig. Þetta hefur verið rauður þráður í ferli Njarðvíkingsins Elvars Friðrikssonar, landsliðs...
•
1:17:39

Jón Kalman
Jón Kalman hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn helsti skáldagnahöfundur landsins og hafa bækur hans komið út á fjölmörgum tungumálum. Hann flutti til Keflavíkur 12 ára gama...
•
1:35:00

Ingibergur Þór Jónasson
Umhverfið í kringum heimaslóðirnar í Grindavík hefur alltaf verið griðarstaður fyrir Ingiberg Þór Jónasson ljósmyndara. Náttúran veitir honum hugarró og jafnvægi í lífsins ólgusjó. Hann fór fyrst á sjóinn um fermingaraldur og lærði þar heilm...
•
1:08:05

Garðar Örn Arnarson
Örlögin höguðu því þannig að hann skráði sig í kvikmyndaskóla þegar hann var við það að stimpla sig út úr námi. Þrennum Edduverðlaunum síðar er Garðar Örn Arnarson einn afkastamesti kvikmyndagerðamaður Íslands og brautryðjandi þegar kemur að...
•
1:11:53

Una Steinsdóttir
Hún hefur ástríðu fyrir lífinu og þykir vænt um fólk.Una Steinsdóttir er einn af helstu stjórnendum Íslandsbanka og að baki fjölda landsleikja í handbolta. Henni finnst best að vera í sókn í lífinu, það þarf í það minnsta að ve...
•
1:10:35

Hólmfríður Árnadóttir
Hún flutti til Suðurnesja fyrir fimm árum síðan og tók þar við stöðu skólastjóra Ssand, hún brennur fyrir velferðarmálum og er alveg einstaklega jákvæð. Við ræddum við Hólmfríði um lífið á Suðurnesjum, sakamálasögur, vegahlaup og að sjálfsög...
•
50:02

Birgir Þórarinsson
Hann þótti villingur og ekki líklegur til að verða guðfræðingur og virðulegur þingmaður. Það má segja að hann sé 19 aldar maður í hjarta. Hann er strandamaður, óðalsbóndi á Knarranesi á Vatnsleysuströnd þar sem eitt sinn varð til ríkisstjórn...
•
1:50:18
.jpeg)
Vilhjálmur Árnason
Hann var flutningsmaður áfengisfrumvarpsins en sjálfur hefur hann aldrei byrjað að drekka. Hann er sveitastrákur sem endaði á Alþingi með viðkomu í lögreglunni. Í búsáhaldabyltingunni varð hann bókstaflega fyrir fyrir sprengju mótm...
•
1:44:47
Oddný Harðardóttir
Hún verður alltaf samofin Garðinum enda býr hún þar enn á æskuheimili sínu. Þar var lífið oft erfitt í æsku Oddnýjar. Foreldrar hennar skildu þegar hún var táningur og heimilislífið var litað af drykkju föður hennar. Hún missti móður sína sem u...
•
1:40:58

Guðbrandur Einarsson
Guðbrandur Einarsson verslaði fermingarfötin timbraður. Snemma náðu áfengi og kannabisefni sterkum tökum á lífi þessa unga manns sem dreymdi um að verða bóndi. Hann setti tappann í og sneri sér að tónlist, verkalýðsmálum og stjórnmálum. Hann er...
•
1:32:23
Jóhann Friðrik Friðriksson
Hann þótti uppátækjasamur sem barn og var kallaður Suðurnesjaskelfirinn. Áhugi hans liggur víða og því hefur hann prófað margt og má þar nefna störf við fjölmiðla, uppistand og nám í lýðheilsufræðum en hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri...
•
Season 2
•
Episode 1
•
1:25:39

Erla Reynisdóttir
Erla Sóley Reynisdóttir er ekki há í loftinu en það háði henni aldrei á körfuboltavellinum enda keppnisskapið mikið hjá þessum "stáldverg" eins og sumir kölluðu hana þegar þeir áttuðu sig á því að undir björtu fasinu bjó einbeittur sigurvilji. ...
•
43:48

Eðvarð Þór Eðvarðsson
Þegar flest okkar eru að vakna þá er Eðvarð Þór að klára útihlaup, nýbúinn með sundæfingu eða jafnvel að klára 18. holu í Leirunni. Slíkur er metnaðurinn og drifkrafturinn. Hann hækkaði ránna í sundíþróttinni á Íslandi við aðstæður sem ekki tel...
•
2:02:50

Páll Ketilsson
Hann stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki aðeins 20 ára gamall og það er enn sprelllifandi - og það á sömu kennitölu. Það má segja að Víkurfréttir séu sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Flestir þekkja fjölmiðlamanninn en færri þekkja heimilisfaðirinn, g...
•
2:07:39

Helga Sigrún Harðardóttir
Hún hefur komið víða við enda óhrædd við áskoranir hvort það er í námi eða starfi og hún var einu sinni pönkari.Lífið hefur verið allskonar, sorgin knúði dyra þegar eiginmaður hennar lést eftir stutta baráttu við krabbamein og henni var ...
•
1:30:51

Harpa Jóhannsdóttir
Hún fór í tónleikaferðalag um heimsálfur með tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur sem var ævintýri fyrir 19 ára básúnuleikara. Harpa segir okkur frá tónlistinni, hjónabandinu og hvernig það er að uppgötva að barnið þitt er ekki eins og önnur b...
•
1:16:55

Þráinn Kolbeinsson
Þráinn Kolbeinsson er lærður sálfræðingur en ákvað að venda sínu kvæði í kross og eltast við drauminn - að gerast ljósmyndari. Hann fluttist til Grindavíkur og kynntist þar fegurð Reykjanesskagans sem er einstakur á heimsvísu. Hann segir okkur ...
•
49:26

Kristín Júlla Kristjánsdóttir
Hún er Gervahönnuður sem safnar Edduverðlaunum. Hún var uppreisnargjarn unglingur sem var send í sveitaskóla vestur á Reykjanes. Þar kynntist hún öllum villingunum úr Reykjavík og gerðist pönkari á Hlemmi. Hún kemur til dyranna eins og hún er k...
•
2:22:36

Friðrik Árnason
Þrátt fyrir að vera rétt skriðinn yfir fertugt þá hefur Friðrik Árnason verið starfandi í ferðaþjónustu í 30 ár. Um fermingu fór hann hjólandi upp í Leifsstöð þar sem hann fiskaði ferðalanga í svefnpokagistingu í Njarðvíkurskóla. Hann var...
•
1:08:05
Guðbjörg Glóð Logadóttir
Guðbjörg Glóð Logadóttir á stóran þátt í að breyta viðhorfi okkar Íslendinga gagnvart fiski. Á hennar æskuheimili komst lítið annað að þar sem sem frumkvöðullinn faðir hennar seldi fisk til Ameríku við matarborðið. Hún gekk með hugmyndina um...
•
1:39:24

Gunnar Örlygsson
Sjómennska og veiði er Gunnari Örlygssyni í blóð borin. Hann fór um fermingu á sjóinn en í dag flytur hann út ferskan fisk víða um veröld og veltir milljörðum. Njarðvíkingurinn stoppaði stutt við á Alþingi en þar hóf hann ...
•
1:53:14

Veigar Margeirsson
Hægláta tónskáldið sem haldið hefur sig í Hollywood í næstum tvo áratugi. Hann hefur samið tónlist fyrir stiklur mynda eins og Lord of the rings, Joker og Batman begins. Keflvíkingurinn Veigar Margeirsson er einlægur og hógvær þrátt fyrir ma...
•
1:36:54

Bergur Þór Ingólfsson
Bergur Ingólfsson er hinn grindvíski Billy Elliott. Fyrsti atvinnuleikarinn úr bæjarfélaginu og hefur átt farsælan feril sem leikari og leikstjóri í yfir aldarfjórðung. Bergur ásamt fjölskyldu sinni átti stóran þátt í að fella ríkisstjórn og hr...
•
1:11:42
