Flimtan og fáryrði
Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Gunnlaugur Bjarnason, óperusöngvari, vita sitt hvað um óperur og íslenskar bókmenntir fyrri alda og í þessum þáttum tala þeir um bæði þessi efni. Þora meðan aðrir þegja...
Flimtan og fáryrði
38 – Vandræðabarnið Gunnlaugur (sýnishorn)
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Gunnlaugur og Ármann ræða Gunnlaugs sögu en óminnishegrinn sveimar yfir þeim þannig að úr verður kátlegt minnisleysingjaleikrit. Meðal annars berst talið að fjárfestingarstefnu Gunnlaugs ormstungu, óhefðbundnum lækningaraðferðum hans, Gunløgsgade í Kaupmannahöfn, hvort Gunnlaugur og Hrafn hafi verið rapparar síns tíma eða hvort óskynsamlegt sé að færa særðum andstæðingi vatn. En afsannaði Jón Sigurðsson fornsögurnar? Er verra að þola ekki Þorstein Egilsson en vera búinn að steingleyma honum?
---
Kæri hlustandi. Þetta er bara sýnishorn en þátturinn í fullri lengd er einöngu opinn áskrifendum á Patreon síða Flimtans og fáryrða, https://tinyurl.com/uyte74dv