Flimtan og fáryrði
Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Gunnlaugur Bjarnason, óperusöngvari, vita sitt hvað um óperur og íslenskar bókmenntir fyrri alda og í þessum þáttum tala þeir um bæði þessi efni. Þora meðan aðrir þegja...
Episodes
71 episodes
Sumarþáttur — Vellíðan er aukaatriði
Gunnlaugur og Ármann fagna 70. þætti og ræða söngleikinn Koppafeiti (Grease), meðal annars Grís-æði vorsins 1979 og Grease Horror sýningu Fjölbrautarskóla Suðurlands sem þó er ekki djarfasta sýning söngleiksins á Íslandi. Talið berst að samskip...
69 – Brosnan baular
Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Kristínu Lilju Thorlacius til að ræða frægasta glymskrattasöngleik sögunnar, Mamma Mia sem Judy Craymer, Catherine Johnson og Phyllida Lloyd spunnu upp úr lögum Björns og Benny úr ABBA og er hugsanle...
68 – 18. aldar fuckboi
Gunnlaugur og Ármann (oft kallaðir Statler og Waldorf óperuheimsins) ræða stórvirki Mozarts, Don Giovanni, og eru aldrei þessu vant frekar hrifnir þó að Mozart fari illa með tenórinn. Sönn iðrun, flókin sögusamúð, hefndarþyrstar aukape...
67 – Byltingin er eilíf
Gunnlaugur og Ármann ræða nú óperu John Adams, Nixon in China (1987) og um leið kínverk stjórnmál 1960–1980 og hvernig kaldrifjað útspil á kosningaári tryggði framhaldslíf mannkynsins. Talið berst einnig að hinum erótíska sjónvarpsþætt...
66 – Geta Þjóðverjar dansað?
Gunnlaugur og Ármann eru komnir til New York og búnir að kynna sér Sögu úr Vesturbænum (West Side Story) sem upphaflega hét East Side Story og hefur tvisvar verið kvikmynduð og auk heldur verið flutt á Íslandi. Þeir ræða líka tegundafl...
65 – Maðurinn sem æpti bravó!
Gunnlaugur og Ármann geta ekki haldið sig frá Verdi og nú er það óperan sem mörgum finnst sú besta í heiminum, Rigoletto, sem var fyrsta íslenska óperusýningin hjá Þjóðleikhúsinu árið 1951. Talið berst meðal annars að sjálfum Stefanó Í...
64 – Batman á heima á Selfossi
Ármann og Gunnlaugur ræða frægustu leðurblöku menningarsögunnar, þ.e. Die Fledermaus eftir sjálfan valsakónginn Johann Strauss yngri sem hugsanlega fann upp söngleikinn. Eins hvernig snobb og lágkúra fara saman eða hvernig góð gagnrýni...
63 – Pavarotti rekur tána í
Gunnlaugur og Ármann halda alla leið til Egyptalands að ræða frumsýningu Aidu sem Ismail khediv pantaði af Giuseppe Verdi þegar Súezskurðurinn var opnaður. Talið berst einnig að brottför Roberto Alana úr sýningu Zeffirellis, Sam Wanamaker og dó...
Páskaþáttur – Guð er með öll spilin á hendi
Gunnlaugur og Ármann eru uppfullir af heilögum anda þegar þeir ræða rokkóperuna Jesus Christ Superstar sem fyrst var konseptplata og hefur verið sýnd um heim allan og er líka afar „meta“. En þeir ræða líka eina nótt í Bangkok með öllu nema Yul ...
61 – Puccini og kynlífsbyssurnar
Nú eru Gunnlaugur og Ármann komnir að hinum tilfinningasama stórreykingamanni Puccini og óperu hans Madame Butterfly sem Malcolm McLaren gerði fræga á ný árið 1984 og varð síðar að söngleiknum Miss Saigon. Talið berst einnig að leikriti David H...
60 – Krípí stelpur og kexát
Gunnlaugur og Ármann hafa afar misjafnar skoðanir á Töfraflautunni, hinstu óperu Mozarts, en eru sammála um ágæti kólóratúrsöngkonunnar Cristinu Deutekom. Talið berst að sjálfsögðu að frímúrurum, stolnum jólalögum, Hanswursthefðinni, þrítölunni...
59 – Í þessum mjúka þræði ...
Fáir tengja Gilbert og Sullivan við hrollvekjur en Gunnlaugi og Ármanni tekst samt að gera það í þessum þætti þar sem rætt er um The Mikado, Savoy-óperuna, „patter song“, grínbarítóna, rímsnilld Gilberts og fleiri einkenni þessara ágætu bresku ...
58 – Brúðkaupið!
Gunnlaugur og Ármann eru á leið í brúðkaup og fyrir því stendur sjálft undrabarnið Wolfgang (ásamt Lorenzo Da Ponte). Brúðkaup Fígarós er iðulega talin besta ópera allra tíma þó að aðalandstæðingarnir reynist óvænt vera foreldrar söguhetjunnar....
57 – Húmor flyst ekki alltaf vel
Gunnlaugur og Ármann gæða sér á tournedos og ræða þriðja frægasta Jóakim nútímans, tónskáldið Rossini og hina vinsælu óperu hans, Rakarann í Sevilla. Rossini sló snemma í gegn en þróaðist frá opera buffa yfir í ellisyndir á langri ævi og var ja...
Jólaþáttur V: Kjöthleifsát og kynusli
Ármann og Gunnlaugur snúa aftur í fimmta jólaþátt þessa langlífa, sívinsæla og sumir myndu segja sígilda hlaðvarps en sérstakur gestur þessa sögulega þáttar er Kristín Lilja Thorlacius Björnsdóttir kvikmyndafræðingur og eiginkona Gunnlaugs. Í t...
55 – Brothætta konan og eitraða karlmennskan
Gunnlaugur og Ármann ræða Carmen eftir franska tónskáldið Bizet og í leiðinni óhjákvæmilega 19. aldar rithöfundinn Prosper Mérimée og söngkonuna Mariu Callas. Gunnlaugur segir hræðilegan brandara um Bach og Offenbach og eftir það getur þá...
54 – Óhefðbundin fegurð óperusöngvara
Gunnlaugur og Ármann ræða óperettu sem Ármann hefur raunar séð á sviði, Kátu ekkjuna eftir Franz Lehar sem var meistari léttleikans og gleðinnar fyrir utan að hefja þrítugu konuna til vegs og virðingar í óperettuheiminum og semja mörg „Tauberli...
53 – Nazgúlaskrækir brjóstmylkinga
Nú beina Gunnlaugur og Ármann sjónum að sjálfum Richard Wagner og tveimur af þekktustu óperum hans, Rínargullinu og Valkyrjunni. Gunnlaugur rekur raunir sínar úr alþjóðlegum Wagner-hópum og síðan berst talið að jafnvel enn verri aðdáendum hans ...
52 – Leiksoppar og rannsóknaræfingar
Ármann og Gunnlaugur eru ekki sérfróðir um óperur eins og þeir hamra á en hafa báðir horft á Ævintýri Hoffmanns (1881) eftir Frakkann Jacques Offenbach, samtíðarmann Verdi og Wagners. Þar með hafa þeir hætt sér inn í fúafenjasvæði gama...
51 – Varasamir vasaklútar
Nú fer hlaðvarpið rækilega út fyrir þægindarammann, yfirgefur Íslendingasögur í bili og beinir sjónum að óperum í staðinn. Í fyrsta þætti er rætt um Ótello (1887) eftir græningjann Giuseppe Verdi og vin hans Boito. Enginn man eftir Bus...
Jólaþáttur IV: Jólatré í janúar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands kemur í heimsókn í jólaþáttinn sem er jafnframt 50. þáttur hlaðvarpsins og hefur Gunnlaugur mandarínur á borðum af því tilefni. Þar sem þau Ármann eru systkini er rætt um dálæti formæðra þeirra á Bol...
49 – Drottningar breyta sér í svölur og skáld flytja kvæði
Gunnlaugur og Ármann ræða hina gömlu lummu um sannleiksgildi Íslendingasagna og fornrita yfirleitt sem almenningur (einkum eldra fólk) hefur mikinn áhuga á. Talið berst einnig að Landnámu og landamerkjadeilum, Kristínu Geirsdóttur og trú aldamó...
48 – Jekyll og Hyde á íslenskum miðöldum
Gunnlaugur og Ármann ræða Fóstbræðrasögu og þá glannalegu hugmynd Ármanns að Þorgeir Hávarsson og Þormóður Kolbrúnarskáld séu dæmi um tvífaraminnið sem síðar komst í tísku og tákngervingar tvöfeldninnar í mannssálinni. Þetta tengist umræðunni u...
47 – "Ei ber því að leyna"
Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntagrein sem varðveittist í öðrum textum, dróttkvæði í Íslendingasögum og konungasögum. En eru þau eftir skáldin sem þau eru kennd? Hvort eru flokkar eða drápur betri? Var Gísli súrrealisti? Hvers vegna er engin ...
46 – Elskið friðinn, strjúkið orðskviðinn
Gunnlaugur og Ármann fá Vigdísi Hafliðadóttur sem eitt sinn var fyndnasti háskólaneminn í heimsókn og þau ræða orðskviði og almennan fróðleik í Grettis sögu og Hávamálum. Vigdís reynir að stela titlinum „rödd almennings“ frá Gunnlaugi þó að hún...