Flimtan og fáryrði
Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Gunnlaugur Bjarnason, óperusöngvari, vita sitt hvað um óperur og íslenskar bókmenntir fyrri alda og í þessum þáttum tala þeir um bæði þessi efni. Þora meðan aðrir þegja...
Flimtan og fáryrði
Jólaþáttur II – Guð pissar á sig
Séra Sveinn Valgeirsson kemur í heimsókn í sérstökum jólaþætti þar sem rætt er um muninn á prestsstörfum í borg og landsbyggð, kraftaverk miðalda og jarteinasögur, íslenska dýrlinga, sérgreiðslur til presta, hversu illa Svíar voru liðnir á miðöldum, áhuga Gunnlaugs á Hallmark-bíómyndum og muninn á Lúter og Luther. Einnig um jólasiði í ýmsum löndum, gjafir vitringanna, presta í fjölskyldu Ármanns, setningagerð í guðspjöllunum, útvarpsmessuna á jólunum, Sinterklaas og fylgdarmenn hans, áfengisleysi norrænna jóla, mikilvægi grískukunnáttu, vinsæla playmókarla og að lokum um endurfæðingu Guðs í mannslíki. Aldrei hefur jólalegri hlaðvarpsþáttur litið dagsins ljós.