Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Jón Arnar talar um konsert Sir James MacMillan

Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra

Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.

0:00 | 17:42

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum í ár, 29. janúar næstkomandi, hljómar básúnukonsert eftir skoska tónskáldið Sir James MacMillan sem jafnframt stjórnar tónleikunum. Einleikari í konsertinum er Jón Arnar Einarsson, leiðari básúnudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands og hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands verið þátttakandi á hátíðinni frá upphafi. Myrkir músíkdagar standa yfir dagana 29. janúar - 1. febrúar 2026.