Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Í Hljómkviðunni er hlustendum veitt fjölbreytt innsýn í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Rætt er við fólk sem tengist hljómsveitinni á einn eða annan hátt. Hugað er að sögu sveitarinnar, ýmsum hliðum starfseminnar og auðvitað tónlistinni sjálfri.
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ríflega 100 tónleika á ári hverju af ýmsum toga og tekur á móti breiðum hópi áheyrenda. Leyfðu þér að hrífast með og kynntu þér tónleika sveitarinnar á vefnum sinfonia.is og á samfélagsmiðlum.
Episodes
14 episodes
Mahler 8 - Rætt við Svanhildi Óskarsdóttur
Undir lok maí, nánar tiltekið 29. og 30. maí, flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands áttundu sinfóníu Gustavs Mahler en þetta verður í fyrsta sinn sem þetta stórvirki verður flutt á Íslandi. Hljómsveitin verður með stærsta móti, myndarlegur kór á sv...
Daníel Bjarnason ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime
Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime. Platan kemur út 27. febrúar næstkomandi hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Sono Luminus og inniheldur þrjú verk eftir Daníel í flutningi Sinfóníuhlj...
Jón Arnar talar um konsert Sir James MacMillan
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum í ár, 29. janúar næstkomandi, hljómar básúnukonsert eftir skoska tónskáldið Sir James MacMillan sem jafnframt stjórnar tónleikunum. Einleikari í konsertinum er Jón Arnar Einarsson, le...
Mugison tekinn tali
Guðni Tómasson ræðir við tónlistarmanninn Mugison í tilefni tónleika hans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands 6. & 7. nóvember næstkomandi.
Ólafur Kjartan Sigurðarson – staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2024-25
Ólafur Kjartan Sigurðarson baritónsöngvari er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands á yfirstandandi tónlistarári. Hér ræðir Guðni Tómasson framkvæmdastjóri SÍ við Ólaf um líf í söng.
Guðný Guðmundsdóttir – Sinfónían í 75 ár
Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Guðnýju Guðmundsdóttur sem var konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands um áratuga skeið.
Joe Ognibene – Sinfónían í 75 ár
Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Joe Ognibene hornleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands sem leiddi horndeildina um árabil.
Helga Hauksdóttir – Sinfónían í 75 ár
Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Helgu Hauksdóttur sem var fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og síðar tónleikastjóri hennar.
Eggert Pálsson – Sinfónían í 75 ár
Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Eggert Pálsson slagverksleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands um ýmislegt úr sögu hennar.
Einar Jóhannesson – Sinfónían í 75 ár
Í þessum þætti Hljómkviðunnar ræða tveir klarinettuleikarar saman – Einar Jóhannesson sem var fyrsti klarinettuleikari sveitarinnar um árabil og Sigurður Ingvi Snorrason sem ræðir við nokkra hljóðfæraleikara sveitarinnar í tilefni 75 ára afmæli...
Víkingur og Daníel – Halla Oddný ræðir við tónskáldið og einleikarann um FEAST
Þriðji píanókonsert Daníels Bjarnasonar, FEAST, var saminn fyrir Víking Heiðar Ólafsson að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Útvarp og Fílharmóníusveitarinnar í Los Angeles. Konsertinn var frumfluttur í Walt Disney-tónleikahöllinni í Los Ang...
Sinfónía nr. 1 – Halla Oddný ræðir við Högna Egilsson
Högni Egilsson hefur um langt árabil verið meðal kunnustu tónlistarmanna landsins. Þessir spennandi tónleikar í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru helgaðir nýrri sinfónískri tónlist Högna og mun hann einnig koma fram sjálfur me...
Töfrar fortíðar – Halla Oddný ræðir við Þórunni Ósk
Í hverri sinfóníuhljómsveit starfa hátt í hundrað manns sem hver og einn á að baki langt og strangt nám í sinni grein. Hver leggur sitt af mörkum til heildarinnar en er um leið fær um að stíga inn í sviðsljósið sem einleikariþegar færi gefst.&n...
Strauss og Shostakovitsj – Halla Oddný spjallar við Árna Heimi
Í fyrsta þætti Hlaðvarps Sinfóníuhljómsveitar Íslands spjallar Halla Oddný Magnúsdóttir við Árna Heimi Ingólfsson tónlistarfræðing um verkin á efnisskrá fyrstu tónleika grænu raðarinnar í vetur, sem bera yfirskriftina Strauss og Shostakovit...