
Það er alltaf þriðjudagur
Hversdagsleikinn getur heltekið okkur. Það er ekkert meira grámygluhversdagslegt og þriðjudagar. En við gefum skít í það og kúplum okkur aðeins út og veltum hlutunum fyrir okkur.
Það er alltaf þriðjudagur
12.Yesterday
•
Pétur Guðjónsson
•
Season 1
•
Episode 12
Í þessari viku vitnar Pétur í Bítlalagið Yesterday, um skyndilegar breytingar sem geta orðið í lífinu og að allt getur breyst á augabragði.
Út frá þeim vangaveltum þróast spjallið út í nægjusemi og hvernig vandamál okkar geta jafnvel verið sjónarmið, frekar en vandamál.
Þegar við stöndum frammi fyrir til dæmis því að missa heilsuna, þá er skiptir lægðin yfir landinu eða há verðbólga mun minna máli.
En eins og alltaf eru þetta vangaveltur sem eiga mörg sjónarmið og lausnin á lífsgátunni er ekki að finna í þættinum. Vekur þó mögulega upp ný sjónarhorn.