
Það er alltaf þriðjudagur
Hversdagsleikinn getur heltekið okkur. Það er ekkert meira grámygluhversdagslegt og þriðjudagar. En við gefum skít í það og kúplum okkur aðeins út og veltum hlutunum fyrir okkur.
Það er alltaf þriðjudagur
16.Sólbrendur með quick tan brúsa
Í þessari viku er Pétur rétt nýkominn frá ferðalagi frá Ítalíu og situr við gluggann með haustlægðina í bakgrunni og ræðir um ferðalög okkar Íslendinga síðustu 50 ár. Hvernig við hegðum okkur í dag í samanburði við til dæmis fyrir 50 árum þegar við fórum á sólarströndina.
Að einu sinni voru myndaalbúm skoðuð hjá ferðalöngum sem voru á sólarströnd, tollurinn og Tobleron yfir ferðasögunni en núna, kemur hún samstundis á samfélagsmiðlum.
Einnig tala Pétur um að honum þyki hálfgerð rómantík yfir sögnum af ferðum Íslendinga til Spánar sjötíu-og eitthvað, þegar við vorum eins og íslenskir víkingar í ránsferð, sem í því tilfellinu var ódýrt áfengi.
Margt hefur því breyst og þá er ástæða til að spyrja; hvernig verður þetta eftir 40 ár. Mun allt breytast jafn mikið varðandi ferðalög eins og það hefur gerst á síðustu 40 árum?
Eina fullyrðingin varðandi ferðalög sem sett eru fram í þættinum er, að heima er alltaf best.