
Það er alltaf þriðjudagur
Hversdagsleikinn getur heltekið okkur. Það er ekkert meira grámygluhversdagslegt og þriðjudagar. En við gefum skít í það og kúplum okkur aðeins út og veltum hlutunum fyrir okkur.
Það er alltaf þriðjudagur
18.Hvað er svona merkilegt við það?
Í þessari viku er grein sem birtist á Akureyri.net í janúar sl.að mestu umfjöllunarefnið. Þar var fjallað um málefni sem þá voru í fréttum og fjölluðu um karla í samskiptum við konur. Líka um að konur gætu ekki þetta eða hitt.
Pétur vitnar í ýmislegt sem í gegnum tíðina hefur þótt kerlingalegt að gera eða ýmislegt sem karlar eiga að gera en konur geta ekki.
Til dæmis fyrir 25 árum hafi börnin hans verið spurð hvort mamma þeirra hafi bakað heimabakaða brauðið en þá hafi þótt skrítið þegar þau svöruðu;”nei, pabbi bakaði það”.
Megininnihald þáttarins er: Hann, hán, kvár, hún eða hvað sem þú skilgreinir þig, allir geta borið áburðarpoka eða lakkað neglur.