
Það er alltaf þriðjudagur
Hversdagsleikinn getur heltekið okkur. Það er ekkert meira grámygluhversdagslegt og þriðjudagar. En við gefum skít í það og kúplum okkur aðeins út og veltum hlutunum fyrir okkur.
Það er alltaf þriðjudagur
23.Svona eru jólin
Í þessari viku er litið til aðventunar sem senn gengur í garð. Pétur ræðir um neysluhyggju okkar, um kvíðann sem getur dunið yfir þegar jólin nálgast, jólakvíði. Það þarf að finna réttu gjafirnar og standa sig í jólaboðum en svo þarf líka að huga að heilsunni og réttu buxnastærðinni. Hún getur verið breytileg ef þú ætlar til dæmis að smakka alla jólabjórana sem koma á markaðinn. Eða fara á öll jólahlaðborðin sem eru í boði á svæðinu.
Svo getur aðventan, sem er oft með marga viðburði í boði, kallað á svokallað fomo (fear of missing out) sem í hinum ágæta sjónvarpsþætti Kappsmáli er þýtt sem útundanótti.
Er aðventan farin að teygja sig full mikið inn í nóvember með til dæmis jólalögum, öli og matarveislum?