
Í alvöru talað!
Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi.
Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós.
Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt.
Í alvöru talað!
35. Aftur á vinnumarkað eftir 14 ár. Hekla Guðmundsdóttir, Bandvefslosun
Einlægt samtal við Heklu, eiganda Bandvefslosunar, um slys, áföll og hvernig er að koma aftur á vinnumarkað eftir 14 ár.
Hekla Guðmundsdóttir er eigandi fyrirtækisins Bandvefslosun og bjó til æfingakerfi sem heitir Body Reroll. Hún lenti í áföllum og slysum ung sem varð til þess að hún gat ekki unnið í 14 ár. Einnig þurfti hún að losa sig við mjög ávanabindandi verkjalyf sem hún varð að taka vegna mikilla verkja eftir slys. Hún segir frá þessu öllu saman ásamt því hvernig hún komst á þann stað sem hún er núna. Í dag líður henni vel og er sátt við stöðuna sína.
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Þátturinn er í boði
- Lúx hár og förðun, Faxafeni 14
- Balmain hárvörur
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.