
Í alvöru talað!
Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi.
Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós.
Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt.
Í alvöru talað!
42. Er ekki bara gaman á Tinder? Hrafnheiður Valdís, sálfræðingur
Hrafnheiður Valdís Baldursdóttir, sálfræðingur hjá Samkennd heilsusetri, kom í heimsókn. Við hana spjöllum við um hvernig það er að leita sér að maka á miðjum aldri, og þá sérstaklega hvernig það er að nota stefnumótaforrit. Það er á margan hátt mjög flókið, vekur upp alls konar flóknar tilfinningar og krefst sjálfskoðunar. Einlægt og skemmtilegt spjall um makaleit!
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Þátturinn er í boði
- Balmain hárvörur
- Jörht góðgerðar og bætiefni
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.