
Í alvöru talað!
Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi.
Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós.
Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt.
Í alvöru talað!
43. Streita og óttaviðbrögðin fjögur
Lydía fer yfir viðbrögðin fjögur sem taugakerfið velur á milli þegar við erum í ótta- eða streituviðbragðinu. Þau eru fight, flight, freeze og fawning. Líkaminn er alltaf að vinna fyrir okkur og hann virkjar óttaviðbragðið til þess að verja okkur. Mjög hjálplegt er fyrir okkur að skilja þessi viðbrögð og læra að bera kennsl á það þegar við erum í þessum viðbrögðum.
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Þátturinn er í boði
- Balmain hárvörur
- Jörht góðgerðar og bætiefni
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.