Í alvöru talað!
Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi.
Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós.
Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt.
Í alvöru talað!
50. Systrakraftur! Ása Ottesen
Ása Ottesen kom til okkar. Hún sterk og falleg kona sem hefur ýmsa fjöruna sopið. Það sama mætti segja um systur hennar, Jónu. Þær misstu lítinn bróður sinn í umferðarslysi þegar þær voru unglingar en svo slasaðist Jóna alvarlega í umferðarslysi árið 2019.
Ása segir Jónu ekki hafa fengið þá hjálp frá heilbrigðiskerfinu sem hún þurfti og þess vegna hafa vinir og fjölskylda hennar styrkt hana til þess að fara í endurhæfingu á Spáni sem hefur verið mjög hjálpleg fyrir hana. Hægt er að finna upplýsingar um hvernig er hægt að styrkja hana hér:
Facebook síða um endurhæfingarferð Jónu
Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Þátturinn er í boði
- OsteoStrong
- Jörht góðgerðar og bætiefni
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.