Í alvöru talað!
Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi.
Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós.
Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt.
Í alvöru talað!
51. Ertu á breytingaskeiðinu? Hanna Lilja Oddgeirsdóttir, GynaMedica
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir, kvensjúkdómalæknir, er framkvæmdastjóri lækninga og stofnandi GynaMedica. Kvenheilsa er hennar hjartans mál og hún stofnaði þess vegna GynaMedica sem er lækninga- og heilsumiðstöð fyrir konur.
Í þættinum ræðir Hanna Lilja um heilsu kvenna og breytingarskeiðið en leyfir sér líka að taka niður læknahattinn og vera persónuleg og segja sínar skoðanir á hlutunum.
Hlustendur fá 15% afslátt af vörum Jörth með afsláttarkóðanum íalvörutalað inni á Jorth.is
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Þátturinn er í boði
- OsteoStrong
- Jörht góðgerðar og bætiefni
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.