Í alvöru talað!
Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi.
Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós.
Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt.
Í alvöru talað!
57. Gleði, ólympíuleikar og kynlífssögur
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Bara Lydía og Gulla í þetta skiptið. Spjall um gleði og fíflagang, um skrítnar sögur af ólympíuleikunum og kall eftir kynlífssögum frá ykkur!
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Þátturinn er í boði
- Geymsla 1
- Húðklík
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.