Í alvöru talað!
Í hlaðvarpinu Í alvöru talað! tölum við um allar hliðar mennskunnar með dass af fíflagangi.
Stjórnendur hlaðvarpsins eru vinkonurnar Lydía og Gulla. Miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós.
Markmið hlaðvarpsins er að gera gagn í samfélaginu með því að skapa rými til þess að sameinast í mennskunni. Við tölum um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins. Um það sem er erfitt og það sem er auðvelt, um það sem er skemmtilegt og það sem er minna skemmtilegt í bland við það að hlæja hátt.
Í alvöru talað!
66. Leiklistin og lífið! Þorsteinn Bachmann
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Þorsteinn Bachmann er einn af stórleikurum okkar Íslendinga sem í raun þarf ekki að kynna…enda gleymdum við því!
Leiklist og kennsla er hans ástríða en hann er óeigingjarn á tímann sinn og natinn við að ná því besta út úr nemendum sínum. Hann er einnig einstaklega næmur á hið mannlega en hjartahlýjan og einlægnin skýn af honum í viðtalinu.
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Þátturinn er í boði
- Gott jafnvægi, streitunámskeið
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.