Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
Ferðalög til Ítalíu og ferðatilboð þangað hafa aukist verulega á undanförnum árum. Hlaðvarpið ”Ítalía heillar” er tileinkað þér sem hefur nú þegar ferðast um landið eða hefur Ítalíu á óskalistanum.
Ég heiti Magga — ég er menntaður tónmenntakennari og upplýsingafræðingur. Í hlaðvarpinu ætla ég að deila fróðleiksmolum fyrir ferðalanga um Ítalíu, Ítali, ítalska menningu, borgir og bæi, eyjar, héruð, fegurðina, sérviskuna og ótalmargt fleira en líka litlu augnablikunum sem sjaldnar eru dregin fram.
Ítalía hefur verið hluti af lífi mínu í áratugi. Ég bjó þar fyrst sem skiptinemi, eignaðist fjölskyldu og vini fyrir lífstíð og leiðin hefur legið aftur og aftur til þessa fallega lands. Meðfram starfi mínu sem upplýsingafræðingur, varði ég mörgum sumarleyfum sem fararstjóri íslenskra ferðahópa á Ítalíu, þar sem nánast hver vegur, hvert stræti leiðir mann að einhverju ógleymanlegu.
Heimildir fyrir efni þáttanna eru fengnar víða. Ég vitna í eigin reynslu, reynslusögur annarra, leiðbeiningar virtra ferðafrömuða og margt fleira.
Njótið – ciao ciao.
Episodes
6 episodes
5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu?
Í þessum þætti er farið yfir hvernig þú getur fengið aðstoð á Ítalíu, hvort sem um er að ræða væga kvilla eða neyðrartilvik.Fyrir brottför ættir þú að sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið (EHIC) hjá Sjúkratryggingum Íslands, skoða þær...
4. Lago di Garda – Gardavatnið og töfrar þess sem heilla ferðalanga
Lago di Garda – Lake Garda – GardavatniðGardavatn (Lago di Garda), stærsta vatn Ítalíu. Lýst er einstakri fegurð vatnsins, þar sem snævi þaktir Alpatoppar mæta pálmatrjám, ólífutrjálundum og Miðjarðarhafsgróðri og skapa lan...
3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?
Hér færðu að kynnast helstu mistökum sem ferðamenn gera á Ítalíu og hvernig þú getur forðast þau til að njóta ferðarinnar betur.Nokkrar óvæntar reglur geta komið þér á óvart. Til dæmis geturðu fengið háa sekt ef þú borðar hjá frægu...
2. Ítalía II - Væntingar og veruleiki. Af hverju heillast ferðalangar af Ítalíu?
Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um ÍtalíuÍ þessum þætti er farið yfir það sem gott er fyrir þig að vita áður en lagt er af stað til Ítalíu. Fjallað er um muninn á væntingum og veruleika og hvernig þú getur notið landsins betur...