Út í óvissuna
Sögur úr starfi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Undanfarna mánuði höfum við rætt við einstaklinga úr starfi félagsins og farið yfir fjölbreytt málefni sem tengjast starfi Landsbjargar.
Nýr þáttur annan hvern miðvikudag.
Fyrirspurnir og hugleiðingar má senda á:
📧molar@landsbjorg.is
Episodes
9 episodes
#9 - Hálendisvaktin & sögulegir munir í Skógum
Í níunda þætti Út í óvissuna fjöllum við um Hálendisvaktina í Landmannalaugum, Nýjadal og Herðubreiðarlindum. Einar Daníelsson segir frá tilgangi verkefnisins, verkefnum sumarsins og helstu tölum.Síðan förum við í Skóga undir Eyjafjöllu...
#8 - Útkallsbækurnar & Hannes Þ. Hafstein
Í áttunda þætti Út í óvissuna er rætt við rithöfundinn Óttar Sveinsson, höfund hinna vinsælu Útkallsbóka, um sögurnar sem hann hefur safnað úr björgunarstarfi gegnum árin og nýjustu bókina Ég er á lífi.Í seinni hluta þáttarins segir Þors...
#7 - Flugbjörgunarsveitin Hellu & Frú Guðrún Jónasson
Að þessu sinni hefjum við leikinn á Suðurlandi, nánar tiltekið á Hellu, þar sem Sigurgeir Guðmundsson, félagi í Flugbjörgunarsveitinni Hellu, tók á móti okkur. Við vildum kynnast sögu sveitarinnar og starfseminni á Hellu, og Sigurgeir var sanna...
#6 - Fyrst íslenskra kvenna að ganga á Mont Blanc
Ólafía Aðalsteinsdóttir hóf störf með Hjálparsveit skáta í Reykjavík í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar og hefur því fylgst með starfinu þróast í meira en hálfa öld. Hún segir frá því hversu miklu máli skátastarfið skipti á unglingsárunum...
#5 - Neyðarlínan & Björgunarhundasveit Íslands
Í fimmta þætti hlaðvarps Landsbjargar höldum við áfram að kynna okkur ólíkar hliðar starfsins.Í fyrri hluta þáttarins ræðum við við Vilhjálm Halldórsson, varðstjóra hjá Neyðarlínunni. Hann hefur starfað þar um árabil og segir okkur frá ...
#4 - Bakverðir & Nýtt húsnæði HSSK
Í fjórða þætti verður fjáröflun í brennidepli enda mikilvægur liður í starfsemi félagsins. Bakvarðaverkefnið fór af stað árið 2013 og hefur vaxið mikið síðan þá. Rætt var við Flóka Guðmundsson hjá Takk, sem hefur starfað fyrir fjöl...
#3 - Slysavarnaskóli sjómanna & Áhafnaskipti IMRF
Sjóbjörgun verður í aðalhlutverki í þætti vikunnar. Bogi Þorsteinsson, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, tók á móti okkur á Reykjavíkurhöfn og bauð okkur um borð í skólaskipið Sæbjörgu. Hlutverk skólans er að standa fyrir öflugu fræðslustar...
#2 - Sjálfboðaliði í tæp 70 ár & Rótarskot á Snæfellsnesi
Freyr Bjartmarz hefur séð tímana tvenna í starfi félagsins en hann gekk til liðs við Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur á sjötta áratug síðustu aldar og hefur verið viðloðinn björgunarsveitina í tæp 70 ár. Við fórum yfir víðan völl og ræddum meðal ...