Heppni og Hetjudáðir
Fjögurra manna hópur sem spilar Dreka & Dýflissur, fimmtu útgáfu. Spilið er hlutverkaspil sem byggir á spuna. Saman búum við til ævintýri með hjálp teninga. Hlaðvarpið er á íslensku, eða við reynum eftir fremsta megni að þýða það sem er á ensku. Aðal markmiðið er að hafa gaman og hlægja saman.
Heppni og Hetjudáðir
41 - Yrðlingar
•
Jóhann, Svandís, Ívar og Kristín
•
Season 1
•
Episode 41
Týran fær að sjá raunverulegt andlit konunnar í skóginum, og finnur eitthvað í kjallaranum sem þau áttu ekki von á. Þau reyna að komast hratt en laumulega í bæinn sem liggur nær miðjum skógi, en það er eitthvað á eftir þeim...
Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara/paladin á sjöunda stigi.
Kristín leikur Gyu, útvörð/ranger á sjötta stigi, og laumupúka/rogue á fyrsta stigi.
Ívar leikur Egor, Drúíða/Druid á sjöunda stigi.