
Leiðin að sjálfinu
Leiðin að sjálfinu
Andleg iðkun á óvissutímum
Í leiðinni að sjálfinu ferðast Kamilla Ingibergsdóttir og Sólbjört Guðmundsdóttir um andlegar víddir, velta hlutunum fyrir sér og skoða þau verkefni sem hver sál kýs sér á lífsleiðinni. Leiðin að sjálfinu er einlæg og persónuleg nálgun á stóra verkefnið, lífið sjálft!
Í þessum þætti ræða Kamilla og Sólbjört þá óvissutíma sem við búum við nú, velta fyrir sér hverjar gjafir þeirra eru og skoða leiðir til að dvelja í kyrrð og trausti þegar það reynist erfiðara en venjulega.
Við bjóðum þér að njóta hljómanna í lok þáttar til að loka augunum og tengja þig inn á við. Hljómarnir koma frá alkemíukristalskálum sem við spiluðum á.
Viltu vita meira um okkur?
www.kako.is
www.ljosheimar.is
Kamilla á Instagram
Sólbjört á Instagram
Kamilla og Ananda á Facebook
Sólbjört og Ljósheimar á Facebook
Hljóðvinnsla fór fram í LubbaPeace
Takk fyrir að leggja við hlustir.