Þungavigtin
Þungavigtin er fyrst og fremst þáttur um knattspyrnu og öllu henni tengdri. Hvort sem er innanlands eða utan. Liðsmenn þáttarins þarf vart að kynna fyrir þjóðinni. Skútunni stýrir Rikki G íþróttafréttamaður ásamt Mikael Nikulássyni og Kristjáni Óla Sigurðsyni betur þekktir undir nöfnunum Mike og Höfðinginn. Þættirnir koma út á föstudögum inn á allar helstu veitur þar sem góðir gestir líta við. Fyrir þá allra hörðustu kemur Þungavigtin saman á hverjum mánudegi á tal.is/vigtin og verða þeir þættir aðeins aðgengilegir áskrifendum. Þar koma Mike, Höfðinginn og Rikki G saman og ræða fótbolta á mannamáli. Auk þess fær Höfðinginn reglulega gesti í Einn á Einn með Höfðingjanum. Þættirnir verða ýmist í hljóð og eða myndbandsformi.
Podcasting since 2021 • 223 episodes
Þungavigtin
Latest Episodes
Þungavigtin - Jólavigtin fór yfir boltann á léttu nótunum.
Rikki, Höfðiginn og mættu mættu léttir á öðrum degi jóla að hita upp fyrir boltahelgina.
•
1:16:45
Þungavigtin - Stór breyting á Blikum með Óla Inga og risa helgi í PL.
Richard, Mike og Höfðinginn á föstudegi.
•
1:10:19
Þungavigtin - 400.000€ beint á bankabók Blika.
Höfðinginn, Mæk og Viktor Unnar hituðu upp fyrir boltahelgina og fóru yfir stóru málin.
•
1:27:34