
Uppsveitakastið
Spjall og hugleiðingar um menn og málefni í uppsveitum Árnessýslu
Uppsveitakastið
Sigurður Ingi
•
Jónas
Um leið og Uppsveitakastið óskar hlustendum sínum gleðilegs nýs árs og þakkar samfylgdina á nýliðnu ári er nýr þáttur settur í loftið. Hreppamaðurinn Sigurður Ingi Jóhannsson fer hér í stuttu máli yfir lífshlaup og feril. Það er líklega óhætt að segja að fáir ráðherrar hafa stjórnað jafn mörgum ráðuneytum og hann. Bóndi, dýralæknir, þingmaður, ráðherra. Það var mjög gaman að fá að heyra í honum varðandi lífið og tilveruna. Það er svo aldrei að vita nema við fáum að heyra meira á komandi misserum.