Uppsveitakastið
Spjall og hugleiðingar um menn og málefni í uppsveitum Árnessýslu
Uppsveitakastið
Tveir á tali 12.02.25
•
Jónas
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Nú er komið að tilraun hjá Uppsveitakastinu. Árni Þór Hilmarsson og Jónas Yngvi Ásgrímsson fara yfir það sem er á döfinni í uppsveitunum. Skoðaðar eru fundargerðir sveitarstjórna og molar lesnir úr þeim.
Stefnt er að því að hafa þessa þætti reglulega og væri vel þegið ef klúbbar, félög, fyrirtæki, einstaklingar láti okkur vita af viðburðum eða bara hverju því sem koma má á framfæri. Gestum verður boðið að kíkja inn og spjalla um daginn og veginn.
Við vonum að vel verði tekið í þetta framtak og af því verði einhver skemmtun en einnig eitthvað gagn.