Uppsveitakastið

Sex í sveit

Jónas

Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.

0:00 | 58:08

Björk Jakobsdóttir, leikstjóri, kom í spjall ásamt eiginmanninum, Gunnari Helgasyni. Björk hefur undanfarna mánuði verið að leikstýra leikdeild UMFG í verkinu Sex í sveit eftir Marc Camoletti í heimfæslu og þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Rætt var um sýninguna og svo allt annað og mikið meira.

Eftir spjallið fór ég á leiksýninguna og er skemmst frá að segja að úr varð hin besta skemmtun og ég hvet alla til að sjá þessa uppfærslu í Árnesi. Eftir sýningu tók ég leikhópinn tali og sögðu þau mér allt um uppfærsluna og hópinn.