
Hugrænn styrkur
Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær til sín afreks- og fagfólk með það markmið að heyra áhugaverðar sögur, fræðslu og opna umræðu á andlegu hlið afrekssviðsins.
Episodes
10 episodes
#9 - Agnar Smári Jónsson
Agnar Smári Jónsson, handknattleiksmaður, var gestur í níunda þætti. Agnar Smári á farsælan feril á bakinu. Hann talar um baráttu sína við átröskun og afleiðingar hennar, þ.á.m. sjálfsvígshugsanir, og pressuna á að halda andliti og frammistöðu ...
•
Season 1
•
Episode 9
•
1:23:12

#8 - Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Arnór Sveinn Aðalsteinsson, knattspyrnumaður, heimspekingur og kennari, var gestur í áttunda þætti. Arnór Sveinn á langan feril í knattspyrnu. Hann segir frá sinni nálgun á hugarfari bæði innan knattspyrnunnar sem og í lífinu. Þá fer hann yfir ...
•
Season 1
•
Episode 8
•
1:35:33

#7 - Anton Sveinn McKee
Anton Sveinn McKee, afreksmaður í sundi og Ólympíufari, var gestur í sjöunda þætti. Anton fer yfir feril sinn og segir frá hinum ýmsu verkfærum sem hann nýtti til að ná sínum árangri. Anton fór inn á sín gildi sem íþróttamaður og bað okkur um a...
•
Season 1
•
Episode 7
•
1:22:04

#6 - Guðlaug Edda Hannesdóttir
Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona og Ólympíufari, var gestur í þætti sex. Guðlaug Edda fer yfir Ólympíuleikana í París, mótlæti og meiðsli sem hún hefur gengur í gegnum og segir frá þróun hennar sem íþróttakonu. Þá fer hún yfir hvernig ...
•
Season 1
•
Episode 6
•
1:14:06

#5 - Kristófer Acox
Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður Vals, var gestur í þætti 5. Farið var yfir sögu hans og Kristófer gaf góð dæmi um hvernig hugurinn getur reynt að leika gegn manni innan sem utan vallar. Hann lýsir því hvernig hann vann ...
•
Season 1
•
Episode 5
•
1:23:09

#4 - Hildur Antonsdóttir
Hildur Antonsdóttir, landsliðs- og atvinnukona í knattspyrnu, var gestur í fjórða þætti. Farið var yfir meiðsli og mótlæti sem hafa haft áhrif á feril Hildar. Hún ræðir mikilvægi þess að þjálfa hugann líkt og líkamann. Hildur lýsir hvernig hún ...
•
Season 1
•
Episode 4
•
1:22:53

#3 - Höskuldur Gunnlaugsson
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks í knattspyrnu, var gestur í þriðja þætti Hugræns Styrks. Höskuldur segir frá erfiðleikum sem hann hefur gengið í gegnum, bæði á knattspyrnuferlinum sem og í lífinu. Hann segir frá tímanum eftir að e...
•
Season 1
•
Episode 3
•
1:49:26
#2 - Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé)
Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé), tónlistamaður og handknattleiksmaður, var gestur í öðrum þætti Hugræns Styrks. Jói sagði frá sínum kvíða og erfiðu hugsunum sem fylgja tónlistinni og handknattleiknum. Hann fór yfir sína upplifun af tónlistar...
•
Season 1
•
Episode 2
•
1:08:12
