
Á ég að hend'enni?
Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu.
Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl.
Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki.
Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli?
Rannsóknarspurningin er: Eiga, eyða eða gefa?
Því einhvers staðar þarf tiltektin að byrja!
Á ég að hend'enni?
31.Á mörkum raunveruleikans (Macbeth)
Halldóra fékk eiginmann sinn til að nálgast Alheimsskjalasafnið eða Akashic skjölin í hugleiðslu og má segja að þau hafi bæði lent í töluverðum ógöngum því þegar þangað er komið er nauðsynlegt að stimpla sig út því annars er maður fastur milli tveggja heima. Steinunn segist svo jarðbundin að hún festist frekar í Napoleonsskjölunum eftir Arnald Indriðason. Fyrirvaralaust breytist Halldóra í söngvarann Jacques Brel og í kjölfar þess ræða þær stöllur handhafa sannleikans og það að lærðir benda á að oft rugli fólk skoðunum sínum saman við sannleikann, Það skyldi þó aldrei vera. Þær skella sér báðar í hlutverk hinnar metnaðargjörnu lafði Macbeth, nokkuð sem leikhúsunnendur ættu að láta fram hjá sér fara.
Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki - Icelandair - Ó. Johnson & Kaaber - Sjáðu Gleraugnaverslun