
Á ég að hend'enni?
Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu.
Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl.
Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki.
Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli?
Rannsóknarspurningin er: Eiga, eyða eða gefa?
Því einhvers staðar þarf tiltektin að byrja!
Á ég að hend'enni?
32. Skjalasafn alheimsins - megum við fara þangað í beinni? (Akashic hugleiðsla)
Þessi þáttur er tekin upp í Skorradal í sumarbústað Halldóru þar sem Steinunn á griðastað og myndar samband við friðland og fiðraða. Halldóra umskapar sjálfa sig og breytist í transmiðil snemma þáttar og þá kemur við sögu hinn kvensjúki Pétur og reyndar ein vinnukona sem hann barnaði margoft í sveitinni. Napóleonsskjölin eða Akashic skjölin eru heimsótt og hauslaus geimvera vill hafa samband við Steinunni. Hvað þýðir það að ganga öfugan sólargang? Það vilja auðvitað allir vita en svörin fást náttúrlega aðeins með því að hlusta.
Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, O.Johnson&Kaaber, og Sjáðu-Gleraugu