
Á ég að hend'enni?
Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu.
Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl.
Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki.
Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli?
Rannsóknarspurningin er: Eiga, eyða eða gefa?
Því einhvers staðar þarf tiltektin að byrja!
Á ég að hend'enni?
35. Erum við stjörnuryk eða zombie-ar? Er hugsanlegt að sumir séu hvortveggja.
Fyrst segir frá kuðungum sem Halldóra bar yfir hálfan hnöttinn. Fermingar ber á góma en hvorki Steinunn né Halldóra fermdust og þess vegna kannski er þetta podcast þeirra svona undarlegt. Er náttúrutrúin það merkilegasta sem við Íslendingar eigum í menningu okkar? Það finnst Steinunni. Halldóra segir frá óvanalegum uppeldisaðferðum þar sem hún hræddi börn sín til varkárni með tröllum. Zombi-ar koma mjög við sögu enda hefur Halldóra merkilega sögu af þeim að segja. Getur einhver vond orka tekið yfir líkama annarra? Er Sjálfskaðahegðun tegund af zombie-isma? Það versta sem getur gerst er að lenda á veltiskilti!!!
Þökkum samstarfið:
Íslandsbanki, Icelandair, Beauty klúbburinn, O.Johnson&Kaaber,
Sjáðu-Gleraugnaverslun.