Stéttir Landsins
Hvað gera leikarar á virkum dögum? Hvernig er stemningin í vinnunni hjá útfararstjóra? Fyrir hverja er ljósmæðranám? Get ég orðið atvinnudansari eftir þrítugt? Er hagfræði hin döpru vísindi?
Við skyggnumst inn í hin ýmsu störf Íslendinga og fáum að vita hvernig blákaldur veruleikinn lítur út.
Þökkum fyrir samveruna í vetur og hlökkum til að mæta á ný í seríu 3!
Samstarfsaðili þáttarins:
🔍 Alfreð & Giggó
---
📅 Miðvikudagar
📷 @stettirlandsins
📩 stettirlandsins@gmail.com
🎙️ Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
Stéttir Landsins
#30 - Þingmaður - Sigmar Guðmundsson
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Alþingismaðurinn alþýðlegi, Sigmar Guðmundsson, tók sér hlé frá þingstörfum og kíkti í uppáhelling til okkar.
Fyrst og fremst brann á okkur sú spurning hvort þetta væri raun og veru skemmtilegt starf. Hversu gíraður þarftu að vera í kosningaframboði, hjá hverjum maður situr í mötuneyti Alþingis, sitja undir málþófi korter í sumarfrí og hvort það sé hægt að hafa skoðanir á öllu.
Síðan var snert á alþjóðamálum, ESB og NATO. Þjóðlegar og hressandi umræður.
Samstarfsaðilar þáttarins:
🔍Alfreð &⚕️Sjúkraliðafélag Íslands
---
📷 @sigmarg
🎵Elephant - Tame Impala
🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs