
Pyngjan
Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda.
Episodes
266 episodes
Föstudagskaffið: Finale (Takk, en bless)
Kæra Pyngjusamfélag! Allt tekur enda og þar er Pyngjan engin undantekning. Þetta hafa verið 3 ánægjuleg ár en nú, eftir 268 þætti, mætast þeir Addi og Iddi í hinsta sinn fyrir aftan míkrófóninn. Við viljum þakka ykkur öllum kærlega fyrir hlustu...
•
1:24:03

Ársreikningar: Finale - SKEL & Lifandi vísindi
Þá er komið að síðasta ársreikningaþætti Pyngjunnar og því þriggja ára vegferð að ljúka. Það kom því ekkert annað til greina en að taka fyrir House of SKEL en svo þurftum við auðvitað að leita í ræturnar og gefa út þátt í anda upphaflegrar Pyng...
•
1:44:56

Föstudagskaffið: Pabbi má ég kíkja í Járnfjallið?
Kæru vinir Pyngjunnar. Þetta mun verða okkar næstsíðasta Föstudagskaffi og því er vel við hæfi að hafa það í lengri kanntinum. Þessi þáttur er gjörsamlega stappaður af viðskipti og vitleysu. Eigið yndislega helgi!
•
1:19:05

Ársreikningar: Isavia
Kæru hlustendur Pyngjunnar! Þá er komið að næstsíðasta ársreikningaþættinum okkar og það er enn eitt ríkisapparatið. Þó lítur út fyrir að vel sé haldið á spöðunum hjá Isavia, ólíkt mörgum öðrum eignum í eigu ríkisins. Saga er sjón ríkari!
•
1:17:50

Föstudagskaffið: Let's talk about Tom (Time to say goodbye)
Já þið heyrðuð rétt, kæru vinir. Pyngjan er á leið í frí - langt frí! Við munum þó dæla í ykkur P-vítamíni út febrúar svo í guðanna bænum verið með okkur þangað til. Þáttur dagsins er einn af þessum klassísku, fréttir, tuð, umfjöllun og hagnýtu...
•
57:57

Ársreikningar: Brim
Í dag tökum við fyrir sögu og rekstur Brims sem er eitt stærsta útgerðarfélag landsins. Iddi droppar alvöru value bombum hægri, vinstri, enda sérfræðingur í þessum efnum.
•
1:26:30

Föstudagskaffið: Besta mögulega ár launþegans er gengið í garð
Kæru hlustendur Pyngjunnar! Við óskum ykkur góðrar helgar og gleðilegs árs. Ef þú ert launþegi er ekkert nema launað frí í vændum svo ekki fara að stofna þinn eigin rekstur á þessu ári. Góðar stundir.
•
53:16

Ársreikningar: Tandur
Hið hreinasta hreinlæti er næst á dagskrá. Bjarni Ármanns virðist sjá í framtíðina og er ótvíræður keisari hreinlætis á Íslandi. Við förum yfir söguna, næyjasta ársreikning og fleira til í dag. Góða helgi.
•
1:12:07

Föstudagskaffið: Saga hlutabréfa á Íslandi með Þórði Pálssyni
Það hlaut að koma að því! Geitin sjálf, Tóti Páls kíkti á okkur upp í Seðlabanka Kópavogs og settist á bakvið míkrófóninn. Í þættinum kynnumst við manninum og förum á hundavaði yfir sögu hlutabréfa á íslandi en sjálfur hefur Tóti séð tímanna tv...
•
1:37:26

Föstudagskaffið: 2024 uppgjör ásamt Helga Frímannssyni
Við fengum til okkar fyrrum hlutabréfamiðlarann Helga Frímannsson sem hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli fyrir greiningar á hlutabréfum á launþegaforritinu LinkedIn á árinu. Við fórum í manninn sem á langan feril að baki í heimi fjármála...
•
1:23:32

Ársreikningar: Innnes
Heildsöluundrið Innnes (með þremur N-um) er eitt þessara fyrirtækja sem lætur hökur falla í gólfið. Allt í eigu eins manns og hefur vöxturinn verið slíkur að maður á vart til aukatekið orð. Verði ykkur að góðu, kæru hlustendur!
•
1:10:05

Ársreikningar: Múrbúðin
Dömur mínar og herrar! Þáttur dagsins er tileinkaður öllum iðnaðarmönnum þarna úti. Feykilega skemmtilegt fyrirtæki sem hefur barist með kjafti og klóm fyrir skynsamri verðlagningu í áranna rás.
•
1:04:49

Föstudagskaffið: Bara aðdáendur (Only fans)
Já kæru vinir Pyngjunnar - loksins eru Addi og Iddi mættir saman á ný og eru með drekkhlaðinn þátt fyrir ykkur í dag. Allt um only fans, fréttir vikunnar og fleira til.
•
55:12

Ársreikningar: Sky Lagoon
Pyngjan kynnir stórmerkilegan þátt, þar sem stutt en ótrlúleg saga Sky Lagoon, er reifuð. Lónið birtist skyndilega á Kársnesinu og engu líkara en að það hafi verið reist yfir nótt en framkvæmdin átti sér þó nokkurra ára aðdraganda. Fyrirtækið e...
•
1:01:35

Föstudagskaffið: Skattamál flokkanna með Gunnari Úlfarssyni
Þegar kemur að efnahagsstefnum stjórnmálaflokkanna eru fáir fróðari en Gunnar Úlfarsson hagfræðingur Viðskiptaráðs sem kom og kjaftaði við okkur í heilar 100 mínútur - minna mátti það ekki vera. Gunnar og kollegar hans hjá Viðskiptaráði héldu n...
•
1:42:11

Ársreikningar: SÝN
Kæur Pyngjuhálsar, í dag er það fjarskipta- og fjölmiðlarisinn SÝN sem verður tekinn fyrir.
•
1:15:59

Föstudagskaffið: Jón Kári Eldon kíkir í kaffi
Hann Jón Kári Eldon er svo sannarlega ekki við eina fjölina felldur, en hann kíkti til okkar í kaffi og ræddi störf sín fyrir Apparatus, Dr.football, listamanninn Jón Kára og fleira til. Þetta er þáttur sem við hreinlega bönnum Pyngjuliðum að m...
•
1:17:44

Uppgjörið: Þriðji ársfjórðungur Nova 2024 - Skemmtanastjórn
Við hittum þau Möggu framkvæmdastjóra og Lalla fjármálastjóra hjá Nova og fórum yfir þriðja ársfjórðung hjá þeim.
•
29:52

Ársreikningar: Skólamatur
Skólamatur ehf. hefur verið í deiglunni undanfarið og sér í lagi vegna niðurgreiðslu ríkisins á skólamat fyrir grunnskóla. Við gerum sögunni og rekstrinum skil í þessu stykki sem þú, hlustandi góður, ættir ekki að láta framhjá þér fara.
•
1:18:51

Föstudagskaffið: Supreme luxury
Hér fáiði einn rjúkandi volgan bolla í kuldanum, beint úr smiðju Adda & Idda. Megi helgin verða ykkur gæfusöm.
•
59:38

Ársreikningar: Ísey útflutningur
Já þeir strokka skyrið sem eiga það! Ísey útflutningur hefur verið í vaxtafasa síðastliðin ár þrátt fyrir nokkrar misheppnaðar útrásir. Við gerum þessu öllu skil og fleira til í þætti dagsins!
•
1:03:48

Föstudagskaffið: Mömmubloggarar are so back!
Stútfullur þáttur af viðskiptum og vitleysu fyrir ykkur, kæru netbankakúrekar og fagfjárfestar. Megi helgin verða ykkar!
•
1:01:47

Ársreikningar: EIK fasteignafélag
Hluthafar Eikar liggja undir yfirtökuárás Langasjós fyrir 11 kr. á hlutinn. Hvað gerist? Við munum ekki svara því í dag, en við munum hrútskýra margt er kemur að sögu og rekstri fyrirtækisins.
•
58:28
